Lærisveinar Adda Mall gulltryggðu sæti sitt í deild þeirra bestu
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP

Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld. Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer gerðu góða ferð til Erlangen og unnu sex marka útisigur 26-32.

Með sigrinum fór Bergischer upp fyrir Erlangen í deildinni og eru komnir í 14.sætið með 20 stig en Erlangen er í 15. sæti með 19 stig. Með sigrinum gulltryggði nýliðarnir í Bergischer sér sæti í deildinni á næsta tímabili.

Noah Beyer var markahæstur í liði Bergischer með 13 mörk og Tobias Buck skoraði sjö fyrir Erlangen.

Í hinum leik kvöldsins vann Fuchse Berlín þriggja marka sigur á útivelli gegn Eisenach 38-41 eftir að hafa verið 14-17 yfir í hálfleik.

Mathias Gidsel var markahæstur á vellinum með ellefu mörk og Lasse Andersson skoraði tíu mörk. Hjá Eisenach var Oskar Joelsson markahæstur með átta mörk og gaf sjö stoðsendingar. Fuchse Berlín er í 2.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 51 stig, tveimur stigum meira en Flensburg sem á leik til góða.

Úrslit kvöldsins:

Eisenach - Fuchse Berlín 38-41
Erlangen - Bergischer 26-32

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top