Mikið undir hjá GOG í einvíginu um bronsið
Julien Kammerer / AFP

Þrátt fyrir vonbrigðin að hafa misst af sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn er mikið undir hjá GOG í viðureigninni gegn Mors-Thy um 3.sætið en í Danmörku er leikið um 3.sætið í úrslitakeppninni.

GOG missti af sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn eftir að hafa tapað undanúrslitaeinvíginu gegn Skanderborg AGF, en bronsviðureignirnar gegn Mors-Thy geta samt tryggt félaginu möguleikann á að sækja um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Metnaðurinn var skýr hjá „De Gule“: GOG ætlaði sér að spila til úrslita um danska meistaratitilinn. Það gekk ekki eftir og því snýst síðasta verkefni tímabilsins nú um bronsviðureignirnar gegn Mors-Thy. Vinni félagið einvígið um þriðja sætið fær það nefnilega möguleikann á að sækja um uppfærslu úr Evrópudeildinni yfir í Meistaradeildina.

Það undirstrikar framkvæmdastjóri GOG, Kasper Jørgensen, í samtali við Fyens Stiftstidende.

,,Við höfum spilað átta undanúrslitaeinvígi um danska meistaratitilinn á níu tímabilum og með bronsverðlaunum getum við enn sagt að við höfum unnið til átta verðlauna á níu tímabilum. Því skipta þessir leikir auðvitað máli, en möguleikinn á Meistaradeildarsæti er það mikilvægasta í þessum leikjum.“

Einvígi GOG og Mors-Thy hefst á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top