Hinn 19 ára gamli Dagur Árni Heimisson hefur skrifað undir 2 ára samning við Handknattleiksdeild KA og snýr því aftur norður á heimaslóðir eftir 1 ár hjá Val á Hlíðarenda. Dagur Árni lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA veturinn 2021-2022 þá aðeins 15 ára gamall. Hann kom sér fljótlega í lykilhlutverk í liðinu og lék alls 76 leiki fyrir KA og var kjörinn besti leikmaður KA tímabilið 2024-2025 þá enn aðeins 18 ára gamall en hann var einnig valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Hann var í kjölfarið seldur til Vals þar sem hann lék á síðasta tímabili en með Val varð Dagur Árni Íslandsmeistari sem og Deildarmeistari. Hann glímdi við þónokkur meiðsli á síðasta tímabili með Val en náði þó að spila 15 leiki og skora 52 mörk. Nú er ljóst að Valur og KA hafa komist að samkomulagi að KA kaupi Dag Árna aftur til KA. "Við erum afar stolt af því að fá okkar frábæra Dag aftur heim. Það er skýr stefna hjá okkur í KA að byggja okkar öfluga lið á KA kjarna sem keyrir á jákvæðri stemningu. Dagur Árni er einn efnilegasti leikmaður landsins og veit nákvæmlega út á hvað handboltinn fyrir norðan snýst um. Það er alvöru fjölskyldubragur á handboltanum hér í KA og alltaf gott þegar uppaldir leikmenn koma aftur heim og ítrekum við að dyrnar hjá okkur standa ávallt opnar. Það er komin virkilega skemmtileg dýnamík í hópinn hjá okkur og ekki spurning að við ætlum okkur áfram að stíga skref áfram og koma KA aftur í alvöru toppbaráttu" sagði Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar KA í fréttatilkynningu frá KA í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.