Fyrri undanúrslitaleikur Evrópudeildarinnar lauk nú rétt í þessu er Kiel vann eins marks sigur á franska félaginu Montpellier. Lokatölur 29-28 fyrir Kiel en Andy Wolff var hetja Kiel í leiknum en hann fór á kostum undir lok leiks og varði tvö skot á síðustu sekúndum leiksins, annað úr dauðafæri af línunni. Kiel leiddi í hálfleik 15-12 en franska félagið byrjaði seinni hálfleikinn betur og komst yfir í stöðunni 19-20 og tvöfaldaði forystuna í stöðunni 20-18. En þá kom 6-1 kafli hjá Kiel sem breytti stöðunni í 24-21. Þjóðverjarnir voru skrefi á undan undir lok leiks en Eric Johansson skoraði sigurmarkið tuttugu sekúndum fyrir leikslok. Montpellier fóru illa að ráði sínu af vítalínunni í leiknum og klikkuðu fjölmörgum vítaköstum. David Balaguer var markahæstur allra á vellinum í Lanxess Arena og skoraði átta mörk fyrir Montpellier. Eric Johansson var markahæstur í liði Kiel með sex mörk. Andy Wolff var með 33% markvörslu í marki Kiel og Remi Desbonnet var með 37% markvörslu í marki Montpellier. Kiel mætir annað hvort Melsungen eða Flensburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en þau lið mætast klukkan 13:30. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.