Mikil óvissa ríkti um þátttöku danska landsliðsmannsins, Thomas Arnoldsen fyrir fyrsta úrslitaleik Álaborgar og Skanderborgar um danska meistaratitilinn. Thomas Arnoldsen meiddist í seinni undanúrslitaleik Álaborgar gegn Mors-Thy og var óvíst með þáttöku hans í leiknum gegn Skanderborg. Þrátt fyrir það fékk hann grænt ljós fyrir leikinn og lék stórt hlutverk undir lok leiks þegar Álaborg fagnaði naumum eins marka sigri 30-29. Hann lék um 20 mínútur og það virðist hafa verið meira en upphaflega stóð til, en Álaborg hafði ætlað að fara varlega með hann í leiknum. ,,Þetta eru augnablikin sem maður spilar handbolta fyrir. Nú verður bara að koma í ljós hvernig öxlin bregst við þessu álagi. Þegar ég vaknaði í morgun bjóst ég alls ekki við að fá jafn mikinn spiltíma og raun varð á í dag,“ sagði Thomas Arnoldsen í samtali við TV 2 SPORT eftir leikinn. Liðin mætast öðru sinni á fimmtudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.