Tóki í Stjörnuna
Stjarnan

Tíki Fridriksson hefur gengið í raðir Stjörnunnar í Olís-deild karla og gerir tveggja ára samning við félagið. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Tóki sem er fæddur árið 2005 gengur í raðir Stjörnunnar frá færeyska félaginu KíF þar sem hann er uppalinn.

,,Tóki er stór og stæðilegur línumaður sem tekur mikið til sín. Hann hefur þegar spilað fjögur tímabil í efstu deild í Færeyjum þrátt fyrir að vera einungis 21 árs. Hann var einnig hluti af U21 liði Færeyja sem náði sér í bronsverðlaun á HM U21 liða arið 2025," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni en Tóki skoraði 56 mörk í 18 leikjum á síðasta tímabili með KíF.

,,Það ríkir mikil ánægja innan Stjörnunnar að fá Tóka til félagsins og teljum að hann styrki liðið mikið. Við bjóðum Tóka hjartanlega velkominn í Garðabæinn og bíðum spennt eftir að sjá hann í bláu treyjunni," segir enn frekar.

Viktor Lekve er þjálfari KíF en Viktor Lekve og Sverrir Eyjólfsson þjálfari Stjörnunnar þjálfuðu saman Fjölni í Grill66-deildinni fyrir nokkrum árum.

Tóki verður annar Færeyingurinn í liði Stjörnunnar en Jóhannes Björgvin hefur leikið með liðinu síðustu tvö tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top