Bjarki Már kvaddi með meistaratitli
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Veszprém og Pick Szeged áttust við í síðari leik liðanna um Ungverska titilinn í kvöld.

Veszprém hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli með tveim mörkum 38-36 og voru því í lykilstöðu fyrir leikinn í kvöld.

Pick Szeged voru sterkari framan af í kvöld og leiddu til að mynda með þrem mörkum í hálfleik, 19-16. Veszprem náðu þó hægt og rólega að finna sig inn í leikinn aftur í síðari hálfleik og voru búnir að jafna þegar um 18 mínútur voru eftir.

Það var svo þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum að Veszprem gerði út um leikinn með frábærum kafla þar sem þeir skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni úr 28-27 í 28-32. Heimamenn í Pick Szeged náðu ekki að búa það bil og tveggja marka sigur Veszprém var niðurstaðan, 34-36.

Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Veszprém í kvöld í lokaleiknum sínum en Ahemd Hesham Elsaeyd var markahæstur í liði Veszprém með 8 mörk. Bence Banhidi var markahæstur í liði heimamanna með 6 mörk en Janus Daði Smárason sem lék einnig sinn síðasta leik í kvöld skoraði 2 mörk en hann heldur til Barcelona í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top