Skipta Flensburg Pajovic út eftir vonbrigðin undanfarið?
FRANK MOLTER / AFP

SG Flensburg-Handewitt lauk þátttöku sinni í úrslitahelgi Evrópudeildarinnar með 32-30 sigri á Montpellier í leiknum um þriðja sætið. Þrátt fyrir sigurinn var Aleš Pajovic, þjálfari Flensburg, ekki sáttur eftir helgina og lýsti niðurstöðunni sem „tvöföldum vonbrigðum“.

Flensburg fór til Hamborgar með það markmið að vinna Evrópudeildina, en tap í undanúrslitunum batt enda á þær vonir. Með titlinum hefði einnig fylgt mikilvægur möguleiki á að komast nær sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

„Við vildum vinna titilinn, en það tókst ekki. Við vorum mjög vonsvikin í gær og þess vegna var ekki auðvelt að hvetja liðið fyrir leik um þriðja sætið, því hann gefur manni í raun ekkert. Við sýndum karakter, við sýndum baráttuvilja og ég er ánægður með að fara heim með sigur. Þetta mót gaf okkur tækifæri til að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili og því eru þetta tvöföld vonbrigði,“ sagði Pajovic.

Hann bætti við að Flensburg þyrfti að læra af reynslunni.

„Við höfum átt gott tímabil, en síðustu þrír leikir fóru í illa. Ég vona að við gerum miklu, miklu betur á næsta tímabili.“

Bronsið kom eftir erfiðan kafla hjá liðinu. Fyrir sigurinn á Montpellier hafði Flensburg tapað þremur leikjum í röð, tveimur í Bundesligunni og undanúrslitaleiknum í Evrópudeildinni.

„Það er erfitt að finna skýringu. Við vorum á góðu skriði fram að deildarleiknum gegn Magdeburg sem við töpuðum því miður. Við vorum orðnir þreyttir. Eftir þrjú töp í röð tókum við nú lítið skref fram á við með sigrinum í dag,“ sagði Pajovic.

Þrátt fyrir sigurinn viðurkenndi þjálfarinn að helgin hefði ekki endað eins og félagið hafði vonast til. Bronsverðlaunin breyttu ekki þeirri staðreynd að stærri markmiðin fóru forgörðum.

Pajovic var einnig spurður út í eigin framtíð hjá félaginu. Þrátt fyrir vangaveltur sagðist hann gera ráð fyrir að halda áfram við stjórnvölinn.

„Ég er enn með samning til eins árs í viðbót. En í Berlín sá maður að hægt er að missa starfið jafnvel þótt maður verði þýskur meistari og komist í úrslit Meistaradeildarinnar. Áætlunin mín er hins vegar að halda áfram sem þjálfari Flensburg á næsta tímabili.“

Flensburg kvaddi því úrslitahelgina með sigri og bronsverðlaunum, en eins og Pajovic orðaði það sjálfur lá draumurinn annars staðar.

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti dregið til tíðinda á næstu dögum en talið er líklegra en ekki að Pajovic verði ekki áfram þjálfari Flensburg. Það ætti að skýrast á næstu dögum samkvæmt heimildum Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top