Á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ voru þau Lovísa Thompson úr Val og Arnór Snær Óskarsson úr Val valin leikmenn tímabilsins í Olís deildum kvenna og karla. Bæði léku stórt hlutverk hjá liðum sínum sem urðu Íslands- og deildarmeistarar en kvennalið Vals gerði gott betur og varð einnig bikarmeistari. Lovísa var einnig valin besti varnarmaðurinn og Arnór Snær besti sóknarmaðurinn. Þá fékk Arnór Snær einnig Valdimarsbikarinn en Sandra Erlingsdóttir fékk Sigríðarbikarinn. Hér að neðan má sjá verðlaunahafana úr Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla: Leikmaður tímabilsins: Arnór Snær Óskarsson - Valur Sóknamaður tímabilsins: Arnór Snær Óskarsson - Valur Varnarmaður tímabilsins: Ingvar Dagur Gunnarsson - FH Markmaður tímabilsins: Jón Þórarinn Þorsteinsson - FH Efnilegastur: Ómar Darri Sigurgeirsson - FH Þjálfari tímabilsins: Ágúst Þór Jóhannsson - Valur Valdimarsbikarinn: Arnór Snær Óskarsson - Valur Olís-deild kvenna: Leikmaður tímabilsins: Lovísa Thompson - Valur Sóknarmaður tímabilsins: Sandra Erlingsdóttir - ÍBV Varnarmaður tímabilsins: Lovísa Thompson - Valur Markmaður tímabilsins: Hafdís Renötudóttir - Valur Efnilegust: Arna Karitas Eiríksdóttir - Valur Þjálfari tímabilsins: Anton Rúnarsson - Valur Sigríðarbikarinn: Sandra Erlingsdóttir - ÍBV

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.