Eftir nítján ár hjá Rhein-Neckar Löwen mun Patrick Groetzki leggja skóna á hilluna að loknu tímabilinu. Hægri hornamaðurinn kveður félagið sem ein mesta goðsögn í sögu þess, en mun þó áfram starfa fyrir Löwen utan vallar. Síðasti leikur Groetzki fyrir félagið verður gegn VfL Gummersbach næsta sunnudag. Fyrir leik mun Rhein-Neckar Löwen heiðra hann í heimaleik gegn TSV Hannover-Burgdorf, þar sem búist er við tilfinningaþrunginni kveðjustund. „Allt hefur sinn tíma – og ég hlakka virkilega til þess lífs sem bíður mín,“ sagði Groetzki um ákvörðun sína að hætta. Þrátt fyrir að vera sáttur við ákvörðunina viðurkennir hinn 36 ára gamli leikmaður að kveðjan verði ekki auðveld. „Ég er ekki alveg rólegur þegar ég hugsa um þetta. Ég hef velt fyrir mér hvað ég vil segja, en ég veit líka að ég mun ekki finna raunverulega fyrir tilfinningunum fyrr en síðasti leikurinn fyrir framan okkar stuðningsfólk er búinn.“ Á ferli sínum með Löwen hefur Groetzki verið þátttakandi í öllum stærstu afrekum félagsins. Hann vann tvo þýska meistaratitla, tvo bikarmeistaratitla, þrjá þýska ofurbikara og Evrópubikar EHF. Enginn annar leikmaður í sögu félagsins hefur verið hluti af öllum þessum titlum. Hann hefur einnig leikið 580 leiki í þýsku Bundesligunni fyrir Rhein-Neckar Löwen, sem er félagsmet og gæti reynst erfitt að slá. Frank Bohmann, framkvæmdastjóri þýsku Bundesligunnar, sparaði ekki stóru orðin þegar hann ræddi um Groetzki. „Patrick er einn af stóru íþróttapersónum Bundesligunnar. Hann er sendiherra deildarinnar og handboltans bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.“ Þegar Groetzki kom til Löwen sumarið 2007 vakti hann mun minni athygli en aðrir nýir leikmenn félagsins á þeim tíma. Hann lýsir sjálfum sér sem „ungum og feimnum“ leikmanni, en vann sig fljótt inn í liðið og varð síðar lykilmaður og fyrirliði. Á landsliðsferlinum tók hann þátt í sjö heimsmeistaramótum fyrir Þýskaland, sem er met sem hann deilir með markverðinum Silvio Heinevetter. Þrátt fyrir að leikferlinum ljúki er samband Groetzki við Löwen hvergi nærri á enda. Hann mun taka sæti í stjórn hjá félaginu og hefur þegar komið að ýmsum verkefnum á þeim vettvangi. „Það er góð tilfinning að ljúka ferlinum vitandi nákvæmlega hvað tekur við. Það veitir manni ákveðinn frið. Nú er rétti tíminn til að takast á við eitthvað nýtt.“ Groetzki segir jafnframt að hann hlakki til að hafa meira frelsi í daglegu lífi eftir að hafa í nær tvo áratugi skipulagt allt sitt líf í kringum æfingar og leikjadagskrá Rhein-Neckar Löwen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.