Á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ voru þau Ída Margrét Stefánsdóttir úr Gróttu og Ísak Óli Eggertsson úr Víkingi valin leikmenn tímabilsins í Grill66 deildum kvenna og karla. Bæði léku stórt hlutverk hjá liðum sínum, Ída Margrét var einnig valin besti varnarmaðurinn og Ísak Óli var valinn besti sóknarmaðurinn. Bestu markmenn Grill66-deildanna komu úr Gróttu, þau Hannes Pétur Hauksson og Andrea Gunnlaugsdóttir. Hér að neðan má sjá verðlaunahafana úr Grill66-deildum karla og kvenna. Grill66-deild karla: Leikmaður tímabilsins: Ísak Óli Eggertsson - Víkingur Sóknamaður tímabilsins: Ísak Óli Eggertsson - Víkingur Varnarmaður tímabilsins: Sigurður Páll Matthíasson - Víkingur Markmaður tímabilsins: Hannes Pétur Hauksson - Grótta Efnilegastur: Brynjar Narfi Arndal - ÍH Þjálfari tímabilsins: Aðalsteinn Eyjólfsson - Víkingur Grill66-deild kvenna: Leikmaður tímabilsins: Ída Margrét Stefánsdóttir - Grótta Sóknarmaður tímabilsins: Katrín Helga Davíðsdóttir - Afturelding Varnarmaður tímabilsins: Ída Margrét Stefánsdóttir - Grótta Markmaður tímabilsins: Andrea Gunnlaugsdóttir - Grótta Efnilegust: Laufey Helga Óskarsdóttir - Valur 2 Þjálfari tímabilsins: Hilmar Guðlaugsson - HK

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.