Ingimundur og Hrannar taka við Aftureldingu
Afturelding

Afturelding hefur tilkynnt Ingimund Ingimundarson og Hrannar Guðmundsson sem nýja þjálfara meistaraflokks karla 56 dögum eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum sem þjálfara liðsins eftir að liðið tapaði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn Haukum í oddaleik.

Handkastið greindi frá því í morgun að Hrannar og Ingimundur myndu taka við liðinu en það hefur legið fyrir í lengri tíma að Hrannar myndi taka við liðinu en leit af aðstoðarmanni hans hefur tekið sinn tíma.

Hrannar snýr aftur í Mosfellsbæinn þar sem hann er uppalinn en hann hefur stýrt karla og kvennaliði Stjörnunnar undanfarin ár. Þá var hann í þjálfarateymi FH í skamman tíma og þá var hann einnig aðstoðarþjálfari ÍR. Þá er Hrannar hluti af þjálfarateymi A-landsliðs karla.

Ingimundur Ingimundarson kemur inn í þjálfarateymið með Hrannari en hann hefur stýrt yngri flokkum hjá Val undanfarin ár. Þá var hann í þjálfarateymi Akureyrar frá 2016-2018.

Ingimundur var lykilmaður í einu sigursælasta landsliði Íslands frá upphafi, vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu 2010, auk þess að leika 123 A-landsleiki fyrir Ísland. Sem leikmaður átti Ingimundur afar farsælan feril bæði hér heima og erlendis og lék meðal annars sem atvinnumaður í Sviss, Danmörku, Noregi og Þýskalandi.

,,Við erum afar stolt af því að fá Hrannar og Ingimund til liðs við okkur. Hrannar þekkir félagið, menninguna og umhverfið í Mosfellsbæ út og inn, á meðan reynsla og þekking Ingimundar mun nýtast félaginu afar vel, ekki síst í áframhaldandi þróun ungra og efnilegra leikmanna Aftureldingar. Saman mynda þeir metnaðarfullt og öflugt þjálfarateymi sem mun leiða meistaraflokk karla inn í spennandi framtíð og áframhaldandi uppbyggingu á meðal fremstu liða landsins," segir í tilkynningu félagsins en Afturelding endaði í 6.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top