Þjálfaraferill Arons Pálmars hefst á heimavelli
J.L.Long

Leikjaniðurröðunin fyrir Olís-deild karla á næstu leiktíð liggur fyrir en stefnt er á að Olís-deild karla hefjist fimmtudaginn 3.september.

Nýliðar Víkings fara í Mosfellsbæinn í 1.umferðinni og mæta þar Aftureldingu. Íslands- og deildarmeistarar Vals fara á Selfoss og bikarmeistarar Hauka fá ÍBV í heimsókn.

Fyrsti leikur Arons Pálmarssonar sem þjálfari FH verður á heimavelli gegn Stjörnunni. HK fær KA í heimsókn og Fram tekur á móti Þór.

Í 2.umferðinni verður Reykjavíkurslagur þegar Valur tekur á móti Fram. Fyrstu tvær umferðirnar í Olís-deild karla má sjá hér að neðan en alla leikjaniðurröðunina má sjá á eldri vef HSÍ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top