Norska handknattleikssambandið réði á dögunum, Svíann Magnus Andersson sem nýjan landsliðsþjálfara karlalandsliðsins og verður ráðningin ekki ódýr. Samkvæmt norska miðlinum VG fær Magnus Andersson 1,95 milljónir norskra króna í árslaun, auk árangurstengdra bónusa vegna þátttöku á stórmótum. Launin jafngilda um 24 milljónum íslenskra króna á ári miðað við núverandi gengi. Að sögn Eriks Langerud, framkvæmdastjóra norska handknattleikssambandsins, eru kjör Anderssons svipuð og hjá Ole Gustav Gjekstad, landsliðsþjálfara norska kvennalandsliðsins. Langerud segir fjárfestinguna þó vel verjanlega innan hefðbundins rekstrarramma sambandsins. Hann bendir jafnframt á að laun í handboltanum séu enn langt frá því sem tíðkast í knattspyrnu. Samkvæmt VG fær Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari norska karlalandsliðsins í knattspyrnu, um tíu milljónir norskra króna í árslaun. Randi Gustad, forseti norska handknattleikssambandsins, lýsir yfir mikilli ánægju með ráðningu Magnúsar og danska aðstoðarþjálfarans Henrik Kronborg. „Hann er einstakur handboltaheili,“ sagði Gustad um Andersson í samtali við VG. Sambandið bindur vonir við að þjálfarateymið færi norska landsliðinu dýrmæta reynslu úr fremstu röð alþjóðlegs handbolta. Kronborg hefur meðal annars starfað hjá Álaborg og danska karlalandsliðinu á farsælasta tímabili þess, en Magnus Andersson býr yfir áratugalangri reynslu sem bæði leikmaður og þjálfari. Norska karlalandsliðið hefur ekki unnið til verðlauna á síðustu átta stórmótum. Á árunum 2017 til 2020 vann liðið hins vegar til tveggja silfurverðlauna á heimsmeistaramótum og bronsverðlauna á Evrópumóti með Sander Sagosen í lykilhlutverki. Fyrsta verkefni nýs þjálfarateymis Noregs stýrir verður í undankeppni Evrópumótsins gegn Georgíu í nóvember. Fyrsta stóra verkefnið verður heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar 2027.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.