Mikil umræða hefur blossað upp í Danmörku um hvar karlalandslið þjóðarinnar í handknattleik eigi að leika á heimsmeistaramótinu 2031 og Evrópumótinu 2032. Valið stendur á milli Jyske Bank Boxen í Herning og Royal Arena í Kaupmannahöfn hinsvegar og hafa skoðanir verið afar skiptar. Jyske Bank Boxen í Herning hefur verið heimavöllur danska landsliðsins undanfarin ár en nú hefur borgarstjórinn í Kaupmannahöfn lagt mikla áherslu á að færa heimaleiki danska landsliðsins til höfuðborgarinnar. Jyske Bank Boxen hefur verið helsti vettvangur danskra landsliða á stórmótum um árabil og þar hafa Danir upplifað einhver stærstu augnablik sín í handboltasögunni. Danska handknattleikssambandið staðfesti á dögunum að bæði Herning og Kaupmannahöfn kæmu til greina sem gestgjafaborgir fyrir stórmótin. Sambandið hefur þó sett Kaupmannahöfn í fyrsta forgang og Herning í annan, en endanleg ákvörðun verður tekin síðar á árinu. Sú afstaða hefur kallað fram hörð viðbrögð meðal handboltaáhugafólks, sérstaklega á Jótlandi þar sem margir telja að landsliðið eigi heima í Herning. „Fótboltinn á að vera á Parken, handboltinn í Boxen,“ sagði einn stuðningsmaður landsliðsins í samtali sem danskir fjölmiðlar vitna til. Margir hafa tekið undir þau sjónarmið og telja að handboltamenningin í Danmörku sé sterkust á Jótlandi. Herning hefur byggt upp orðspor sitt sem óopinber höfuðborg dansks handbolta. Á EM karla fyrr á þessu ári voru allir leikir Dana í Jyske Bank Boxen og aðsóknin var gríðarleg. Um 15.000 áhorfendur sóttu hvern leik og yfir 200 þúsund manns heimsóttu sérstakt aðdáendasvæði mótsins. Þá var mótið það áttunda sem haldið hefur verið í höllinni frá opnun hennar árið 2010. Stuðningsmenn Herning benda einnig á að landsliðið hafi náð miklum árangri í borginni og að einstök stemning hafi skapast í höllinni í gegnum árin. Formaður danska handknattleikssambandsins sagði þegar Herning var valin heimavöllur Dana á EM 2026 að bæði leikmenn og þjálfarar upplifðu sig „heima“ í Jyske Bank Boxen. Á móti benda talsmenn Kaupmannahafnar á að höfuðborgin geti boðið upp á stærri markað, fleiri styrktaraðila og aukna alþjóðlega sýn fyrir mótin. Borgaryfirvöld hafa þegar lýst yfir vilja til að sækjast eftir því að halda bæði HM 2031 og EM 2032 í Royal Arena. Umræðan hefur einnig farið af stað af miklum krafti á samfélagsmiðlum. Á dönskum umræðusvæðum hafa bæði Jótar og Kaupmannahafnarbúar lýst yfir stuðningi við Herning og margir telja að stórmót í handbolta eigi að dreifast um landið frekar en að flytjast alfarið til höfuðborgarinnar. Endanleg ákvörðun danska handknattleikssambandsins um framtíðarheimili landsliðsins á stórmótum er væntanleg í nóvember. Fram að því virðist ljóst að deilan milli Herning og Kaupmannahafnar muni halda áfram að vera eitt heitasta umræðuefni dansks handbolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.