Eftir óvænt tap THW Kiel gegn Minden í vikunni þá á félagið í hættu að missa af þátttöku í Evrópukeppni á næstu leiktíð eftir vonbrigða tímabil. Ef það gerist verður það í fyrsta sinn í meira en þrjá áratugi sem þýska stórveldið leikur ekki á Evrópukeppni. Kiel er sem stendur í 5.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Lemgo í lokaumferðinni. Lemgo er í 6.sæti tveimur stigum á eftir Kiel með betri markatölu og það er því ljóst að með sigri Lemgo fer liðið upp fyrir Kiel í töflunni og nælir sér í síðasta sætið í Evrópudeildinni. Lokaumferðin í þýsku úrvalsdeildinni fer fram í dag og þá skýrist hvort Kiel eða Lemgo leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Allir leikir dagsins hefjast klukkan 13:00. Fyrir tapið gegn Minden tapaði Kiel í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn MT Melsungen en sigur þar hefði getað komið liðinu í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Martraðarendir á tímabilinu gæti því þýtt fyrir félagið að liðið leiki í hvorugri Evrópukeppninni á næsta tímabili. Síðast missti Kiel af þátttöku í Evrópukeppni árið 1993. Stór hluti núverandi leikmannahóps var þá ekki einu sinni fæddur. Markvarðatvíeykið Andreas Wolff og Gonzalo Pérez de Vargas voru aðeins tveggja ára gamlir á þeim tíma. Vinstri hornamaðurinn og fyrirliði liðsins, Rune Dahmke, sem fæddist einmitt árið 1993 þegar Kiel missti síðast af Evrópusæti, leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir tapið gegn Minden. ,,Maður ber ákveðna sögu félagsins með sér. Enginn vill að þessi hefð rofni og allir reyna að berjast gegn því að það gerist,“ sagði Rune Dahmke í viðtali við Sport Bild. Þótt þátttaka í Evrópudeildinni fylgi umtalsverður kostnaður hefur keppnin einnig mikilvægt markaðs- og tekjugildi fyrir félagið. Framkvæmdastjórinn Viktor Szilagyi bendir á að félagið hafi byggt upp samstarf við fyrirtæki í tengslum við Evrópukeppnina. „Við höfum markaðssett Evrópukeppnina og nokkrir samstarfsaðilar hafa þegar gefið til kynna að þeir myndu halda áfram þrátt fyrir að við missum af sæti í Evrópukeppninni. Engu að síður yrði það verulegt áfall fyrir félagið ef við misstum af Evrópukeppni,“ sagði Szilagyi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.