Madsen sagður taka við HØJ
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Danski handboltaþjálfarinn Stefan Madsen hefur samkvæmt upplýsingum TV 2 Sport gert samning við HØJ sem tekur gildi sumarið 2027. Hins vegar vinna forsvarsmenn félagsins að því að fá hann til starfa mun fyrr, jafnvel strax í sumar.

HØJ er nú án aðalþjálfara eftir að liðið féll úr deild á síðasta keppnistímabili. Madsen, sem nú stýrir franska stórliðinu PSG, er sagður efstur á óskalista félagsins.

Til þess að hann geti tekið við strax í sumar þarf þó flókin þjálfarakeðja að ganga upp. PSG þarf fyrst að leysa eigin þjálfaramál og er talið skoða möguleikann á að ráða Spánverjann Roberto Parrondo frá þýska félaginu MT Melsungen.

Ef Parrondo á að yfirgefa Melsungen þarf félagið aftur á móti að tryggja sér þjónustu Jaron Siewert. Nokkrar hreyfingar á þjálfaramarkaðnum þurfa því að eiga sér stað áður en Madsen getur hugsanlega losnað undan samningi sínum hjá PSG.

HØJ gekk í gegnum erfiðan vetur á síðasta tímabili. Stian Tønnesen hóf leiktíðina sem aðalþjálfari en var sagt upp störfum um miðbik tímabilsins. Anders Thomsen tók síðan við stjórnartaumunum en tókst ekki að halda liðinu uppi.

Liðið leikur því í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð en eitthvað ótrúlegt þyrfti að gerast svo liðið vinni sér ekki inn sæti í dönsku úrvalsdeildinni strax á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top