Orri Freyr markahæstur þegar Sporting varð bikarmeistari
ANDRZEJ IWANCZUK / AFP

Bikarúrslitin í Portúgal fóru fram í kvöld þegar Benfica og Sporting mættust.

Sporting byrjaði leikinn betur og voru með þriggja marka forystu þegar flautað var til hálfleiks, 17-20.

Benfica voru sterkari í síðari hálfleik og náðu að jafna metinn þegar örfáar mínútur voru til leiksloka. Benfica var svo með frumkvæðið þegar örfáar sekúndur voru eftir og virtist allt stefna í sigur þeirra en Orri Freyr náði að jafna metin í lokasókninni í 35-35 og leikurinn var framlengdur.

Þar voru Sporting menn sterkari og unnu að lokum tveggja marka sigur og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn.

Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur á vellinum með 13 mörk en næstur á eftir honum kom samherji hans Francisco Costa. Hjá Benfica var Gabriel Cavalcanti markahæstur með 8 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top