Benni Óskars sagður á leið til Danmerkur
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Samkvæmt upplýsingum Handballtransfer er danska úrvalsdeildarfélagið TTH Holstebro í viðræðum við leikstjórnandann Benedikt Gunnar Óskarsson leikmann Kolstad í Noregi.

Samningur Benedikts við norsku meistarana rennur út í sumar og er ljóst að hann yfirgefur norska félagið.

,,Hinn 23 ára gamli Íslendingur vakti athygli í úrslitakeppninni með 40 mörkum, með 74,1% skotnýtingu og lagði þar að auki upp 15 mörk. Í Meistaradeildinni skoraði hann 23 mörk fyrir Kolstad á þessu tímabili. Tölur sem bera vitni um leikstjórnanda með bæði skotógn og góða yfirsýn," segir í umfjöllun Handballtransfer um málið.

Þar er fullyrt að viðræður milli TTH Holstebro og Benedikts Gunnars séu í gangi.

Þjálfari TTH Holstebro er Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og fyrir í liðinu er, Jóhannes Berg Andrason en Benedikt Gunnar og Jóhannes Berg voru liðsfélagar í yngri landsliðum Íslands á sínum tíma.

Vitað er af áhuga Íslandsmeistara Vals að fá Benedikt Gunnar aftur heim á Hlíðarenda en Valur tekur þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

SEGIST VERA Á BAKINU Á BENNA SEM ER AÐ SKOÐA SÍN MÁL

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top