Bjerringbro-Silkeborg lætur þjálfarann fara
Bjerringbro-Silkeborg

Danska félagið Bjerringbro-Silkeborg hefur ákveðið að láta aðalþjálfarann Simon Sørensen fara. Simon Sørensen, sem tók við starfi aðalþjálfara hjá félaginu sumarið 2024 eftir þrjú ár sem aðstoðarþjálfari kveður nú félagið eftir nokkurra ára starf innan raða þess.

„Auðvitað er ég leiður yfir því að þurfa að hætta hjá Bjerringbro-Silkeborg. Ég hef kunnað mjög vel við minn tíma hjá félaginu og þær fjölmörgu upplifanir sem fylgdu bæði daglegu starfi og ekki síst leikjunum í JYSK Arena,“ sagði Simon Sørensen á heimasíðu félagsins.

Þrátt fyrir að samstarfinu hafi verið slitið leggur Sørensen áherslu á þakklæti í garð þeirra sem hann starfaði með á sínum tíma hjá félaginu.

,,Ég vil þakka öllum leikmönnunum sem ég hef unnið með, þjálfarateyminu, starfsfólki skrifstofunnar og öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja félaginu lið. Ég tek með mér mikilvæga reynslu inn í næsta kafla ferilsins. Takk fyrir samstarfið og gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni,“ sagði hann.

Bjerringbro-Silkeborg endaði í 7.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar en endaði neðst í fjögurra liða riðli sínum í 8-liða úrslitunum og komst því ekki í undanúrslit úrslitakeppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top