Ljóst hvaða tvær þjóðir fá boðskort á HM 2027
Ahmad AlShehab / NurPhoto via AFP

Alþjóðahandknattleikssambandið, International Handball Federation, hefur úthlutað tveimur boðssætum (e. wild cards) fyrir heimsmeistaramót karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Dregið verður í riðla á morgun klukkan 16:00 Munich, þar sem liðin komast að því hverjir verða fyrstu mótherjar þeirra á mótinu.

Dregið í riðla á HM á morgun.

Alls bárust 13 umsóknir um þau tvö sæti sem í boði voru. IHF hefur ákveðið að veita Tyrklandi og Sádí-Arabíu boðskortin tvö sem í boði voru.

Tyrkland mun taka þátt á heimsmeistaramóti karla í fyrsta sinn í sögunni. IHF telur þátttöku Tyrkja mikilvægt skref í áframhaldandi þróun landsliðsins, sem fær nú tækifæri til að mæta sterkustu þjóðum heims á stærsta sviði handboltans.

Þá er einnig bent á að þátttaka Tyrklands gæti vakið mikla athygli í Þýskalandi, einu af gestgjöfum mótsins, þar sem talið er að um 3,5 milljónir einstaklinga af tyrkneskum uppruna búi í landinu.

Tyrkland tapaði í lokaumferð umspilsins um laust sæti á HM gegn Noregi með samtals 20 markamun. Fyrri leikinn töpuðu þeir þrettán mörkum 43-30 og þann seinni með sjö, 37-30.

(Photo by Ercin Erturk / Anadolu via AFP)

Sádi-Arabía er hins vegar meðal fremstu handknattleiksþjóða Asíu og hefur verið í stöðugri uppbyggingu undanfarin ár. Landið mun nú taka þátt á HM í ellefta sinn, en síðast lék það á heimsmeistaramóti árið 2023.

(Photo by Ahmad AlShehab/NurPhoto) (Photo by Ahmad AlShehab / NurPhoto via AFP)

Þar með er ljóst að þjóðir á borð við, Austurríki, Ungverjaland, Holland, Svartfjallaland, Sviss og Tékkland leika ekki á heimsmeistaramótinu í janúar.

Styrkleikaflokkar fyrir HM 2027:

1. styrkleikaflokkur

  • Danmörk
  • Þýskaland
  • Króatía
  • Ísland
  • Portúgal
  • Svíþjóð
  • Egyptaland
  • Argentína

2. styrkleikaflokkur

  • Frakkland
  • Slóvenía
  • Noregur
  • Serbía
  • Spánn
  • Ítalía
  • Færeyjar
  • Norður-Makedónía

3. styrkleikaflokkur

  • Grikkland
  • Pólland
  • Brasilía
  • Barein
  • Túnis
  • Grænhöfðaeyjar
  • Síle
  • Bandaríkin

4. styrkleikaflokkur

  • Katar
  • Kúveit
  • Japan
  • Alsír
  • Angóla
  • Úrúgvæ
  • Tyrkland
  • Sádi-Arabía

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top