Egypski landsliðsmaðurinn, Yahia Omar hefur skrifað undir nýjan samning við Paris Saint-Germain sem gildir til sumarsins 2030. Franska félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni og bindur þar með einn af lykilmönnum sínum til lengri tíma. Hægri skyttan gekk til liðs við PSG sumarið 2024 eftir farsælan feril hjá Veszprém í Ungverjalandi. Frá komu sinni til Parísar hefur hann fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins og átt stóran þátt í velgengni þess í Frakklandi. Í tilkynningu frá félaginu sagði framkvæmdastjórinn Thierry Omeyer að Omar væri einn af bestu leikmönnum heims í sinni stöðu og að framlengingin væri mikilvægur þáttur í framtíðarsýn félagsins. Omar lýsti einnig yfir ánægju sinni með að halda áfram hjá PSG. ,,Að framlengja samning minn við Paris Saint-Germain er mikilvægt skref á mínum ferli," sagði egypski landsliðsmaðurinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.