Magdeburg tveimur mörkum frá sögulegu meti
Andreas Gora / AFP

SC Magdeburg lauk nýverið tímabilinu í Þýskalandi sem Þýskalandsmeistari en liðið tryggði sér þýska meistaratitilinn eftir afar sannfærandi frammistöðu í Bundesligunni. Meistararnir unnu 31 af 34 deildarleikjum sínum, gerðu tvö jafntefli og töpuðu aðeins einum leik á leið sinni að titlinum.

Liðið endaði með 64 stig á toppi deildarinnar en Füchse Berlin enduðu með 55 stig í 2.sæti deildarinnar. Þrátt fyrir glæsilegt tímabil vantaði þó örlítið upp á að liðið skrifaði nýjan kafla í sögu félagsins.

Eftir síðasta leik tímabilsins stóð markatala Magdeburgar í plús 181 mörkum en það er nákvæmlega tveimur mörkum minna en félagsmetið frá meistaratímabilinu 2021/22. Það met stendur enn í plús 183 mörkum.

Það sem vekur athygli er að Füchse Berlin sem enduðu í 2.sæti í ár eru með betri markatölu en Magdeburg með plús 191 mörk en í fyrra var Füchse Berlin með plús 213 mörk í markatölu þrátt fyrir að hafa aðeins unnið deildina með einu stigi.

Um næstu helgi fer fram úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln þar sem Magdeburg mætir Füchse Berlin í undanúrslitum. Sömu lið mættust í úrslitum keppninnar á síðustu leiktíð þar sem Magdeburg hafði betur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top