Mamic yfirgefur Leipzig og heldur heim
Sina Schuldt / AFP

Króatíski landsliðsmaðurinn Marko Mamić, hefur samið við RK Zagreb og mun ganga til liðs við félagið í sumar.

Mamić sem er 32 ára gömul vinstri skytta og einn reynslumesti leikmaður króatíska landsliðsins, kemur til Zagreb frá þýska Bundesligufélaginu SC DHfK Leipzig þar sem hann hefur leikið frá árinu 2019. Hann hefur einnig leikið með liðum á borð við Vive Kielce í Póllandi, Dunkerque í Frakklandi og Kadetten Schaffhausen í Sviss.

Hjá Leipzig var Mamic liðsfélagi Blæs Hinrikssonar en liðið féll úr þýsku úrvalsdeildinni á dögunum.

RK Zagreb hefur verið áberandi á félagaskiptamarkaðnum undanfarna mánuði og hyggst styrkja hóp sinn verulega fyrir komandi átök í króatísku deildinni og Meistaradeild Evrópu. Forráðamenn félagsins telja að reynsla og varnargeta Mamićs muni skipta sköpum í þeirri vegferð.

Mamić hefur verið einn af lykilmönnum króatíska landsliðsins um árabil og hefur leikið yfir 100 landsleiki. Hann hefur sérstaklega vakið athygli fyrir sterkan varnarleik sinn og hlutverk sitt í hinu þekkta 5-1 varnarkerfi króatíska landsliðsins sem hefur leikið íslenska landsliðið grátt.

Með komu Mamićs sendir RK Zagreb skýr skilaboð um aukinn metnað fyrir næsta tímabil og vonast félagið til að verða samkeppnishæfara í Meistaradeildinni.

Nenad Sostaric þjálfari RK Zagreb sagði í samtali við Handkastið að Mamić hafi komið heim til RK Zagreb af fjölskylduástæðum en honum hafi staðið til boða að leika áfram í Þýskalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top