Segist ekki hræðast milliriðilinn með Íslandi
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Nikolaj Jacobsen þjálfari ríkjandi heimsmeistara Danmerkur segir liðið hafa fengið hagstæðan drátt fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári sem fram fer í Þýskalandi. Dregið var í München í gær.

Danir verða í í G-riðli ásamt Slóveníu, Bandaríkjunum og Angóla. Riðilinn fer fram í Kiel. Jacobsen sagðist ánægður með niðurstöðuna.

,,Við fengum góðan drátt fyrir riðlakeppnina. Við mættum Bandaríkjunum nýlega í Kaupmannahöfn og þekkjum þá því vel, en ég þarf að kynna mér Angóla betur,“ sagði hann. Landsliðsþjálfarinn telur Slóveníu vera liðið sem Danir þurfi helst að hafa áhyggjur af.

„Það er óhjákvæmilegt að mæta að minnsta kosti einu sterku liði í riðlinum og Slóvenía er með gott landslið, skipað mörgum tæknilega sterkum leikmönnum,“ sagði Jacobsen.

Þrjú efstu lið riðilsins fara fram í milliriðil þar sem Danir mæta þremur af efstu liðunum í H-riðli. Þar verða Íslendingar, Norður-Makedónía, Bahrain og Japan. Nikolaj segir að Danir hafi einnig verið heppnir með milliriðil. Milliriðilinn verður leikinn í Hannover en úrslitahelgin fer síðan fram í Cologne.

Milliriðillinn lítur líka vel út fyrir okkur. Fram að 8-liða úrslitum hefðum við getað fengið mun erfiðari drátt,“ sagði Jacobsen.

Heimsmeistaramótið 2027 verður haldið í Þýskalandi í janúar og þar mun danska landsliðið freista þess að vinna sinn fimmta heimsmeistaratitil í röð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top