Framundan er úrslitahelgin í Meistaradeild Evrópu, svokölluð Final 4 helgi í Köln. Þar verður Handkastið meðal áhorfenda þegar fjögur bestu lið Evrópu mætast og berjast um Evrópumeistaratitilinn. Magdeburg eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín á síðasta ári. Ljóst er að við fáum ekki sama úrslitaleikinn í ár þar sem Magdeburg og Fuchse Berlín mætast í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Álaborg og Barcelona. Við getum því fengið Íslendingaslag í úrslitum fari svo að Barcelona með Viktor Gísla Hallgrímsson innanborðs vinni Álaborg og Íslendingalið Magdeburg vinni Fuchse Berlín. Með Magdeburg leika landsliðsmennirnir, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon. Fyrri undanúrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn klukkan 13:00 þegar Magdeburg og Fuchse Berlín mætast og Álaborg og Barcelona mætast í seinni leik dagsins. Úrslitaleikurinn og leikurinn um 3.sætið fara síðan fram á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.