Gervigreindin telur Magdeburg líklegast til sigurs á Final4
HENDRIK SCHMIDT / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þrátt fyrir að fjögur af sterkustu handknattleiksliðum Evrópu séu eftir í baráttunni Meistaradeild Evrópu karla telur gervigreindarlíkanið ChatGPT að þýska stórliðið SC Magdeburg sé líklegast til að standa uppi sem Evrópumeistari þegar úrslitahelgin í Meistaradeildinni, FINAL4 fer fram í Lanxess Arena í Köln um helgina.

Samkvæmt líkindamati ChatGPT eru 32% líkur á því að Magdeburg verji titil sinn. Næst líklegast er spænska stórveldið Barcelona með 29% sigurlíkur, þýska liðið Füchse Berlin fær 25% og danska liðið Álaborg 14%. Þetta þýðir að afar mjótt er á munum á milli þriggja efstu liðanna fyrir úrslitahelgina.

Þýskur stórslagur í undanúrslitum

Dregið var í undanúrslit í maí og þar kom í ljós að ríkjandi Evrópumeistarar Magdeburg mæta þýsku meisturunum Füchse Berlin. Liðin mættust einnig í úrslitaleik keppninnar á síðustu leiktíð þar sem Magdeburg hafði betur og tryggði sér Evróputitilinn.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Álaborg og Barcelona. Það einvígi vekur einnig mikla athygli enda mættust félögin í úrslitaleiknum árið 2024 þegar Barcelona fagnaði Evrópumeistaratitlinum eftir dramatískan sigur.

Dagskrá FINAL4

Úrslitahelgin fer fram í Lanxess Arena í Köln í Þýskalandi, sem hefur verið heimili Final4-keppninnar í rúman áratug. Dagskráin er eftirfarandi:

Laugardagur 13. júní

  • SC Magdeburg – Füchse Berlin kl. 13:00
  • Aalborg Håndbold – Barcelona kl. 16:00

Sunnudagur 14. júní

  • Leikur um þriðja sætið kl. 13:00
  • Úrslitaleikur kl. 16:00

Magdeburg sækir þriðja titilinn á fjórum árum

Magdeburg kemur til Kölnar sem ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleiknum í fyrra. Félagið hefur unnið tvívegis á síðustu þremur tímabilum og getur nú tryggt sér þriðja titilinn á aðeins fjórum árum.

Barcelona er sigursælasta félag í sögu keppninnar með ellefu Evrópumeistaratitla og gæti nú sótt sinn tólfta. Füchse Berlin og Álaborg hafa hins vegar aldrei unnið Meistaradeild Evrópu og gætu bæði skrifað nýjan kafla í sögu félaganna með sigri í Köln.

Barcelona unnu Meistaradeildinat tímabilið 2020/2021, 2021/2022 og 2023/2024 og eru Barcelona og Magdeburg því búnir að vinna keppnina síðustu fimm tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top