Gunnar Steinn Jónsson nýr aðstoðarþjálfari IFK Kristianstad
Fjölnir.is

IFK Kristianstad kynnti í dag nýtt þjálfarateymi fyrir næsta tímabil en Björn Sätherström mun taka við liðinu og Gunnar Steinn Jónsson verður honum til aðstoðar.

Kristianstad gerir eins árs samning við þá báða en með möguleika á því að framlengja og segir félagið að það sé markmiðið.

Björn var aðstoðarþjálfari liðsins á síðustu leiktíð og tekur við af Anders Hallberg. Hann er einnig leikgreinandi fyrir sænska karlalandsliðið og þjálfar U18 ára landslið Svía. Björn hefur áður verið aðalþjálfari HK Malmö og aðstoðarþjálfari hjá ungverska stórliðinu Veszprém. Gunnar Steinn var hluti af þjálfarateymi Hammarby á síðustu leiktíð en aðdáendur IFK Kristianstad þekkja hann sennilega betur eftir tíma sinn sem leikmaður liðsins á árunum 2016-2018.

Gunnar Steinn sagðist við undirskriftina vera mjög ánægður að koma aftur til Kristianstad og að hann og fjölskylda eigi góðar minningar frá tveggja ára veru hans síðast. Hann sé spenntur fyrir því að koma nú inn í nýtt hlutverk og að hann geti lagt sitt af mörkum til þess að hjálpa liðinu að taka næsta skref.

Hjá IFK Kristianstad leikur Einar Bragi Aðalsteinsson og hefur hann verið í stóru hlutverki hjá liðinu. Auk hans skrifuðu þeir Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason undir hjá félaginu í sumar og spila því með liðinu á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top