Einn þekktasti handknattleiksmaður Spánar síðustu tveggja áratuga, Jorge Maqueda, hefur ákveðið að snúa aftur til heimalandsins eftir langan og farsælan feril erlendis. Hinn 38 ára gamli, hægri skytta mun leika með BM Caserío Ciudad Real á komandi tímabili. Maqueda gengur í raðir spænska félagsins eftir tvö ár með Kielce í Póllandi. Maqueda hefur verið einn af reyndustu leikmönnum spænsks handbolta um árabil. Hann hefur leikið með stórliðum á borð við Barcelona, Nantes, Vardar Skopje, Pick Szeged, Veszprém og Kielce og unnið fjölda titla á ferlinum, þar á meðal vann hann Meistaradeild Evrópu með Vardar árið 2017. Koma Maqueda undirstrikar þann metnað sem ríkir hjá Caserío Ciudad Real. Félagið hefur verið á mikilli uppleið undanfarin misseri og virðist staðráðið í að festa sig í sessi meðal sterkustu liða spænsks handbolta. Það er þó engin bein tenging á milli félagsins og BM Ciudad Real sem var á meðal bestu félagsliða Evrópu á sínum tíma. Caserío Ciudad Real hefur byggt upp metnaðarfullt verkefni undanfarin ár og er nú að styrkja sig fyrir átök í efstu deild Spánar. Maqueda snýr heim til Spánar eftir 14 ára dvöl erlendis en hann lék síðast með Aragón á Spáni tímabilið 2011/2012. Þar áður með Alcobendas og Barcelona.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.