Danski handknattleiksmaðurinn Simon Pytlick hefur ekki gefið upp vonina um að lið hans, SG Flensburg-Handewitt, komist í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili þrátt fyrir að félagið hafi endað í 3.sæti þýsku Bundesligunnar sem lauk í gær. Tvö efstu lið deildarinnar vinna sér inn beina þátttöku í Meistaradeild Evrópu. Flensburg mætti Berlínarliðinu í lokaumferð deildarinnar í gær. Liðið átti ekki lengur raunhæfan möguleika á að ná öðru sætinu eftir að MT Melsungen tapaði nýverið fyrir Berlín. Sá sigur styrkti stöðu Füchse Berlin verulega en jók jafnframt líkurnar á að Melsungen komist í Meistaradeildina, þar sem liðið vann Evrópudeildina. Þrátt fyrir þetta ríkir enn von hjá Flensburg. Pytlick sagði í viðtali við Flensburg Avis að 3. sætið gæti reynst mikilvægt ef Handknattleikssamband Evrópu (EHF) ákveður að veita liðinu sérstakt boðssæti, svokallað „wildcard“. ,,Við höldum enn í vonina um að EHF horfi til okkar og veiti okkur wildcard-sæti þannig að við getum tekið þátt í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Þess vegna var mikilvægt fyrir okkur að tryggja þriðja sætið. Við áttum okkur á því að miðað við allt umræðukjaftæðið og óvissuna í kringum stöðuna væri ólíklegt að Melsungen myndi vinna Berlín. Það er þó hvorki Melsungen né Berlín að kenna," sagði Pytlick við Flensburg Avis.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.