Þjálfari Þýskalandsmeistarana og ríkjandi Evrópumeistarana í SC Magdeburg, Bennet Wiegert fór ekki leynt með vonbrigði sín eftir að lið hans féll úr leik gegn Füchse Berlin í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Þrátt fyrir svekkelsið var hann fljótur að hrósa Berlínarliðinu fyrir sína frammistöðu í leiknum og taldi sigurinn fyllilega verðskuldaðan. Füchse Berlin hafði betur í undanúrslitaleiknum 40-35 og hefndi þar með fyrir tapið í úrslitaleik keppninnar á síðustu leiktíð. „Mér finnst Füchse Berlin hafa unnið fyllilega verðskuldaðan sigur. Það kemur engum á óvart að við séum mjög svekktir með úrslitin, en það er hluti af íþróttinni,“ sagði Wiegert eftir leikinn en liðið mætir Álaborg í leik um bronsið í dag en Álaborg tapaði gegn Barcelona í sínum undanúrslitaleik. „Öll liðin leggja gríðarlega mikið á sig allt tímabilið til að komast á Final4. Við vitum það vel, enda höfum við verið hér fjögur ár í röð. Á svona helgi getur allt gerst og stundum líður manni eins og líkurnar séu 50/50,“ sagði hann. Hann nefndi að markvörð Fuchse Berlínar, Dejan Milosavljev sérstaklega sem lykilmann í sigri Berlínar. Serbneski landsliðsmarkvörðurinn varði nokkur mikilvæg skot á lokakafla leiksins þegar úrslitin voru að ráðast og skoraði meðal annars eitt mark í tómt markið. „Í lokin varði Dejan nokkur mjög mikilvæg skot. Þetta var leikur þar sem mikið var skorað og bæði lið áttu erfitt með að fá vörslur. Fuchse Berlín fékk vörslu þegar mest á reyndi og fann þannig leiðina í úrslitaleikinn,“ sagði Wiegert. Að lokum óskaði hann andstæðingunum velfarnaðar í framhaldinu. „Ég óska Berlínarliðinu alls hins besta,“ sagði þjálfarinn að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.