Upp hefur komið umræða um að dómarar leiks Álaborgar og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar sem Barcelona vann eftir framlengdan leik hafi farið framhjá reglum um myndbandsdómgæslu í leiknum. Juri Knorr leikmaður Álaborgar skoraði mark úr aukakasti þegar leiktíminnn í fyrri hálfleikinn var liðinn. Dómarar leiksins dæmdu mark í fyrstu og fögnuðu bæði leikmenn Álaborgar og stuðningsmenn liðsins markinu. Skömmu síðar ákváðu dómararnir hins vegar að fara yfir atvikið með myndbandsupptöku. Eftir skoðun komust þeir að þeirri niðurstöðu að Knorr hafi lyft báðum fótum frá gólfinu í skotinu og markið var því dæmt af. Þótt mat dómaranna á sjálfu atvikinu hafi verið rétt samkvæmt reglum hefur málsmeðferðin vakið gagnrýni. Reglur um myndbandsdómgæslu heimila slíka endurskoðun aðeins á síðustu 30 sekúndum leiks, en ekki við lok hálfleiks eins og í þessu tilviki. Handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard gagnrýnir ákvörðunina harðlega. „Við erum að keppa um stærsta titilinn á stærsta sviðinu og samt þekkja dómararnir ekki reglurnar um myndbandsdómgæslu. Staðreyndin er sú að Álaborg var svipt löglegu marki, leikurinn endaði í jafntefli og liðið tapaði síðan eftir framlengingu,“ sagði Bent Nyegaard í viðtali við TV 2 Sport. Hann telur jafnframt að atvikið kalli á viðbrögð frá Evrópska handknattleikssambandinu. Að hans mati hafi niðurstaðan um að dæma markið af verið rétt, en að rangri beitingu reglna um myndbandsupptöku hafi fylgt alvarlegar afleiðingar fyrir Aalborg. Forráðamenn Álaborgar hafa enn sem komið er ekki viljað tjá sig um málið og Evrópska handknattleikssambandið hefur ekki gefið út opinbera yfirlýsingu vegna atviksins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.