13. Evrópumeistaratitilinn Barcelona
Ronny HARTMANN / AFP

Barcelona er Evrópumeistari karla í handbolta í 13. sinn eftir sigur í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um helgina.

Barcelona hafði betur gegn Füchse Berlin í úrslitaleik keppninnar að viðstöddum rúmlega 20 þúsund áhorfendur í Lanxess Arena í Köln. Barcelona vann þriggja marka sigur 37-34 og tryggði sér þar með sinn 13. Evrópumeistaratitil í sögu félagsins. Ekkert annað félag kemst nálægt þeim árangri.

Eftir að hafa slegið út Álaborg í undanúrslitum eftir framlengdan leik hafði Barcelona yfirhöndina nær allan úrslitaleikinn.

Viktor Gísli Hallgrímsson er leikmaður Barcelona en hann kom lítið við sögu um helgina.

Barcelona hefur nú unnið Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum á síðustu sex árum en liðið vann Meistaradeild Evrópu síðast 2024.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top