Samkvæmt handboltamiðlinum Handball Base mun Filip Jicha láta af störfum sem aðalþjálfari þýska stórliðsins THW Kiel á næstu dögum. Miðillinn greinir frá því að forráðamenn félagsins hafi tekið þessa ákvörðunina í kjölfar vonbrigðatímabils félagsins í þýsku úrvalsdeildinni en Kiel tókst ekki að tryggja sér sæti í Evrópukeppni næsta tímabil. Það er í fyrsta sinn í 33 ár sem félagið nær ekki Evrópusæti. Filip Jicha hefur stýrt THW Kiel frá árinu 2019. Á þeim tíma leiddi hann meðal annars félagið til sigurs í Meistaradeild Evrópu. Jicha á einnig farsælan feril sem leikmaður hjá Kiel og vann Meistaradeildina með liðinu á sínum tíma. THW Kiel hefur enn ekki staðfest eða birt opinberlega upplýsingar um brottför Jicha. Samkvæmt Handball Base má þó búast við umfangsmiklum breytingum hjá félaginu fyrir komandi keppnistímabil. Kiel endaði í 6.sæti deildarinnar með 42 stig, jafn mörg stig og Lemgo. Kiel tapaði einnig í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í byrjun mánaðarins gegn MT Melsungen. Kiel tapaði þremur af síðustu fjórum leikjum liðsins í þýsku úrvalsdeildinni, meðal annars gegn Minden í lokaumferðinni sem féll um deild. Slæmur árangur liðsins undir lok tímabils virðist hafa fyllt mælinn hjá forráðamönnum Kiel en Jicha er með samning við félagið til næsta sumars.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.