Danska úrvalsdeildarfélagið Skjern hefur samið við sænska landsliðs línumanninn Hugo Stuivers til næstu tveggja ára. Stuivers kemur til félagsins frá sænska liðinu HK Malmö. Stuivers sem er 25 ára gamall hefur leikið með Malmö undanfarin fjögur tímabil en liðið tapaði í úrslitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn eftir einvígi gegn Kristianstad. Í mars lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir sænska A-landsliðið gegn Íslandi í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi. Hjá Skjern mun Stuivers berjast um línumannastöðuna við Senjamin Buric og Joachim Møller, sem einnig gekk nýverið til liðs við félagið. Thomas Klitgaard, íþróttastjóri Skjern, segir félagið sjá mikla möguleika í sænska leikmanninum. „Við teljum að Hugo búi yfir miklum hæfileikum. Hann er sterkur leikmaður á báðum áttum vallarins og hefur staðið sig vel síðustu ár. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar aflað sér mikilvægrar reynslu og við teljum að hann eigi enn mikið inni hvað varðar þróun og framfarir. Með Hugo, Senjamin og Joachim höfum við þrjá sterka línumenn sem ættu að falla vel saman,“ segir Klitgaard. Stuivers segir félagaskiptin mikilvægt skref á ferlinum. „Skjern er félag með metnað sem fellur vel að mínum eigin markmiðum. Ég hef lengi stefnt að því að ganga til liðs við stærra félag og reyna mig í einni sterkustu deild heims. Þess vegna finnst mér Skjern vera rétta skrefið á þessum tímapunkti á ferlinum,“ segir hann. Hann nefnir einnig að Oscar Carlén, aðalþjálfari Skjern, hafi haft áhrif á ákvörðun sína en Oscar Carlén tók við Skjern á dögunum. „Það skipti vissulega máli að Oscar Carlén er þjálfari liðsins. Hann er afar hæfur þjálfari og við höfum átt góð samtöl. Ég finn einnig fyrir miklum metnaði hjá félaginu og skýrri framtíðarsýn, sem höfðar mjög til mín. Ég vona að við getum saman náð langt og byggt upp eitthvað stórt á næstu árum,“ sagði Hugo Stuivers við heimasíðu Skjern þegar félagaskiptin voru tilkynnt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.