Danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson lék sinn síðasta leik fyrir Füchse Berlin þegar liðið mætti Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um helgina. Lasse Andersson yfirgefur nú Berlínar félagið og gengur til liðs við HØJ Elite í dönsku B-deildinni. Kveðjuleikurinn endaði þó ekki eins og hann vonaðist eftir en Füchse Berlin beið lægri hlut 34–37 í úrslitaleiknum. Félagið hlaut því silfurverðlaun í Meistaradeildinni annað árið í röð. Þrátt fyrir tapið sagðist Andersson stoltur af þeirri vegferð sem félagið hefur farið á undanförnum árum. „Ég er ótrúlega stoltur af því hvar félagið stendur og því sem við höfum byggt upp saman síðustu árin,“ sagði Andersson eftir leikinn. Á tíma Danans hjá Füchse Berlin hefur félagið fest sig í sessi meðal sterkustu liða í Evrópu. „Við erum komin á þann stað að Füchse Berlin er alltaf talið meðal toppliða. Það er eitthvað sem ég er afar stoltur af,“ sagði hann. Hann viðurkenndi jafnframt að hann hefði ekki séð fyrir sér slíkan endi þegar hann gekk til liðs við félagið en hann kom til félagsins sumarið 2020 frá Barcelona. „Þegar ég kom hingað fyrir nokkrum árum hefði ég aldrei trúað því að ég myndi enda feril minn hjá félaginu með því að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni hér í Köln,“ sagði hann. Tapleikurinn sat þó í honum að leikslokum. „Ég er gríðarlega vonsvikinn, en á sama tíma stoltur af því sem við höfum afrekað og þeirri stöðu sem ég skil við félagið í,“ sagði Lasse Andersson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.