Daninn, Nikolaj Læsø hefur skrifað undir samning við þýska Bundesligu félagið HSG Wetzlar og mun leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Félagið staðfesti félagaskiptin í síðustu viku. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari HSG Wetzlar en liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu eftir harða fallbaráttu við Leipzig og Minden. Læsø, sem er 29 ára gamall kemur til Wetzlar frá danska úrvalsdeildarfélaginu Bjerringbro-Silkeborg. Læsø vakti fyrst mikla athygli þegar hann varð markakóngur dönsku deildarinnar tímabilið 2019–20 áður en hann gekk til liðs við Álaborgar. Þar lék hann meðal annars í Meistaradeild Evrópu og var einn af markahæstu leikmönnum liðsins. Síðar hélt hann til FC Porto í Portúgal áður en hann sneri aftur til Danmerkur árið 2024. Læsø var einnig hluti af danska landsliðshópnum sem varð heimsmeistari árið 2021 en hann á ekki nema sex landsleiki á ferlinum. Michael Allendorf, íþróttastjóri Wetzlar, sagði félagið afar ánægt með að hafa tryggt sér krafta Danans og hrósaði bæði leikskilningi hans og fjölhæfni. Hann taldi Læsø geta styrkt liðið jafnt í sókn sem vörn. Læsø sagðist spenntur fyrir nýju áskoruninni og kvað Bundesliguna vera sterkustu handknattleiksdeild heims. „Það er draumur hvers handknattleiksmanns að fá tækifæri til að sanna sig í Bundesligunni. Ég fékk strax góða tilfinningu fyrir félaginu og tel að Wetzlar sé rétti staðurinn fyrir næsta skref á ferlinum,“ sagði Læsø við undirritun samningsins. Læsø er ætlað að fylla skarð Philipp Ahouansou sem hefur yfirgefið félagið í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.