Arnór Þór fær liðsfélaga Elmars til sín
Bergischer

Danski markvörðurinn Kristian van der Merwe leikur í þýsku Bundesligunni á næsta tímabili eftir að hafa samið við Bergischer HC til ársins 2028.

Van der Merwe kemur til félagsins frá HSG Nordhorn-Lingen, þar sem hann átti afar gott tímabil í 2. Bundesligunni. Samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild var hann með hæstu markvörsluprósentu deildarinnar á nýliðnu tímabili, en hann varði 31,31 prósent skota sem á mark hans komu.

Hjá Nordhorn-Lingen var Daninn liðsfélagi Elmars Erlingssonar en gengur nú í raðir Bergischer þar sem Arnór Þór Gunnarsson er meðal þjálfara.

Fabian Gutbrod, íþróttastjóri Bergischer HC, segir félagið afar ánægt með að hafa tryggt sér krafta Danans.

„Hann er einn besti og stöðugasti markvörðurinn í 2. Bundesligunni. Hann hefur lengi átt skilið tækifæri á hæsta stigi,“ sagði Gutbrod.

Fyrir van der Merwe verður þetta fyrsta tímabil hans í efstu deild Þýskalands. Hann flutti til Þýskalands sumarið 2022 en hafði áður leikið með GOG, Nordsjælland Håndbold og Sønderjyske í heimalandinu.

Markvörðurinn segir ákvörðunina um að ganga til liðs við Bergischer HC hafa verið einfalda.

„Það var auðveld ákvörðun fyrir mig að velja Bergischer. Félagið hefur verið öflugt í að þróa unga leikmenn en býr á sama tíma yfir reynslumiklum kjarna. Mér finnst sú blanda mjög áhugaverð og skapa gott jafnvægi innan félagsins,“ sagði van der Merwe.

Hjá Bergischer HC mun hann mynda markvarðateymi með þeim Christopher Rudeck og Louis Oberosler.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top