Eldri bróðir Lasse Andersson tekur við HØJ
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Það er mikið fjallað um danska félagið HØJ þessa dagana enda mikið um að vera hjá félaginu sem féll nýverið úr dönsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa samið við hvern stórleikmanninn á fætur öðrum.

Danska félagið HØJ Elite hefur fundið nýjan þjálfara fyrir komandi tímabil eftir fall úr dönsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt frétt frá TV 2 Sport verður Nicolaj Andersson ráðinn aðalþjálfari liðsins fyrir komandi tímabil.

Hinn 38 ára gamli Andersson fær það verkefni að leiða HØJ í baráttunni fyrir endurkomu í efstu deild eftir að félagið féll niður í 1. deild að loknu síðasta tímabili.

Andersson kemur til félagsins frá þýska félaginu Buxtehuder og hefur jafnframt sérstök tengsl við leikmannahóp HØJ. Hann er eldri bróðir danska landsliðsmannsins Lasse Andersson, sem einnig gengur til liðs við félagið í sumar.

Samkvæmt TV 2 Sport er þó ekki gert ráð fyrir að Nicolaj Andersson verði aðalþjálfari til lengri tíma. Áætlun félagsins er að hann stýri liðinu þar til Stefan Madsen tekur við starfinu. Gert er ráð fyrir því að þegar Stefan Madsen þjálfari PSG í dag tekur við HØJ verði Nicolaj Andersson aðstoðarþjálfari liðsins.

TV 2 Sport greindi áður frá því að Stefan Madsen, fyrrverandi þjálfari Álaborgar, myndi taka við HØJ í síðasta lagi sumarið 2027. Hugsanlegt er þó að það gerist fyrr ef fyrirhugaðar breytingar á þjálfaramálum hjá nokkrum af stærstu félögum Evrópu ganga eftir.

MT Melsungen hefur þegar framlengt samning Mensings og er hann nú bundinn félaginu til ársins 2028.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top