Framtíð þýska landsliðsmannsins Renars Uscins er enn óljós þrátt fyrir fregnir um að hann hafi þegar samið við franska stórliðið Paris Saint-Germain Handball. Handkastið greindi frá því í lok apríl að hann væri sagður á leið til PSG en eftir það hefur lítið heyrst af framvindu mála þýska landsliðsmannsins. Í lok maí varð opinbert að Uscins yfirgef TSV Hannover-Burgdorf þegar samningur hans við félagið rennur út sumarið 2027. Hægri skyttan hefur verið einn af lykilmönnum Hannover-liðsins undanfarin ár og tímabilið 2026/27 verður hans fimmta með félaginu. Uscins hefur á undanförnum mánuðum verið orðaður við fleiri stórlið í Evrópu meðal annars SG Flensburg-Handewitt og THE Kiel. Í apríl greindi þýska tímaritið Sport Bild frá því að Uscins hefði skrifað undir samning við PSG sem gilti til ársins 2030. Hvorki leikmaðurinn né félögin hafa þó staðfest þær upplýsingar opinberlega. Hinsvegar hefur PSG framlengt samning sinn við egypska landsliðsmanninn Yahia Omar til ársins 2030. Samherji hans í hægri skyttustöðunni, króatíski leikmaðurinn Mateo Maras, er hins vegar aðeins samningsbundinn til ársins 2027. Það er því enn möguleiki á að félagaskipti Uscins til PSG verði að raunveruleika ef Króatinn, Mateo Maras framlengir ekki samningi sínum við PSG.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.