Pólska stórveldið Industria Kielce hefur gengið frá ráðningu Krzysztof Lijewski sem aðalþjálfara liðsins næstu tvö tímabil. Samningurinn var undirritaður í dag í Hala Legionów í Kielce. Lijewski hafði stýrt liðinu tímabundið frá því í apríl eftir að Talant Dujshebaev lét af störfum. Á þeim tíma tókst honum að leiða Kielce til pólska meistaratitilsins á ný eftir tveggja ára bið, en liðið lagði erkifjendurna í Orlen Wisła Płock í úrslitaeinvígi deildarinnar. Krzysztof Lijewski hefur verið aðstoðarmaður Talants Dujshebaev undanfarin sex tímabil eða allt frá því að hann lagði handboltaskóna á hilluna. „Krzysztof sýndi á þessum tveimur mánuðum sem aðalþjálfari að hann á skilið tækifærið til að leiða liðið áfram. Ég var hrifinn af því hvernig hann hóf að byggja upp liðið og koma sínum hugmyndum á framfæri. Ég er sannfærður um að hann muni standa undir væntingum og leiða félagið til frekari árangurs,“ sagði Paweł Papaj, starfandi forseti KS Iskra Kielce. Lijewski er einn þekktasti handknattleiksmaður Póllands. Með pólska landsliðinu vann hann til silfurverðlauna og tveggja bronsverðlauna á heimsmeistaramótum auk þess að taka þátt í fjölmörgum stórmótum, þar á meðal Ólympíuleikunum í Peking og Rio de Janeiro. Sem leikmaður hóf hann feril sinn hjá Ostrovia Ostrów Wielkopolski og lék síðar með Śląsk Wrocław áður en hann hélt til Þýskalands þar sem hann spilaði fyrir HSV Hamburg og Rhein-Neckar Löwen. Með HSV varð hann þýskur meistari auk þess að vinna bikar- og ofurbikarkeppnina tvívegis. Árið 2012 gekk hann til liðs við Kielce og varð fljótt einn af lykilmönnum félagsins. Hann átti stóran þátt í uppbyggingu liðsins sem náði sögulegum árangri með sigri í Meistaradeild Evrópu árið 2016. Á ferli sínum með Kielce vann Lijewski níu pólska meistaratitla, átta bikarmeistaratitla og bæði gull- og bronsverðlaun í Meistaradeild Evrópu. Undir lok leikmannaferilsins sinnti hann hlutverki spilandi aðstoðarþjálfara hjá Talant Dujshebaev og tók síðan við sem aðstoðarþjálfari árið 2021. Í apríl á þessu ári var hann gerður að aðalþjálfara og hefur nú fengið fullt traust stjórnar félagsins til að stýra liðinu næstu tvö árin. „Ég hef fengið tækifæri til að stýra hópi heimsklassa leikmanna og liði sem margir þjálfarar myndu dreyma um að leiða. Ég þakka stjórn félagsins fyrir traustið. Væntingarnar eru miklar, en ég óttast ekki þessa ábyrgð og hlakka til verkefnisins,“ sagði Lijewski eftir undirritun samningsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.