Füchse Berlin sáttir þrátt fyrir að stóru titlarnir hafi farið forgörðum
Fuchse Berlín)

Þrátt fyrir að Füchse Berlin hafi ekki tekist að vinna Bundesliguna eða Meistaradeild Evrópu ríkir ánægja innan félagsins eftir tímabilið. Bæði Bob Hanning framkvæmdastjóri og Nicolej Krickau þjálfari telja árangurinn staðfesta að félagið hafi tekið mikilvægt skref fram á við.

„Þetta var ótrúlega krefjandi tímabil. Okkur tókst á síðustu mánuðum að byggja kúltúr innan félagsins, eitthvað sem ég hefði ekki talið mögulegt áður. Þótt við höfum ekki fengið þann titil sem við vonuðumst eftir um helgina eru bikarmeistaratitillinn, annað sætið í Bundesligunni og sigurinn í Ofurbikarnum framúrskarandi árangur,“ sagði Bob Hanning.

Füchse Berlin var meðal sterkustu liða Evrópu allt tímabilið og náði auk þess í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þótt félagið hafi að lokum misst af stærstu titlunum telur Hanning að þróunin innan félagsins skipti ekki síður máli.

Nicolej Krickau tók í svipaðan streng þegar hann gerði upp tímabilið.

„Fyrir okkur sem félag var þetta mjög farsælt tímabil. Að enda í öðru sæti í þessari erfiðu deild sem þýska deildin er er frábær árangur. Að vinna bikarkeppnina og komast í úrslitaleik meistaradeild Evrópu, þar sem við höfðum raunverulega trú á því fyrir leik að við gætum unnið, er líka stórkostlegt.“

Krickau lagði þó áherslu á að metnaðurinn væri enn meiri.

„Það þýðir ekki að við viljum ekki ná enn lengra. Auðvitað vildum við lyfta bikarnum. En þegar litið er til alls tímabilsins þá var þetta mikill árangur. Þetta skapar góðan grunn fyrir verkefnin sem fram undan eru.“

Þjálfarinn rifjaði einnig upp fyrstu mánuði sína hjá félaginu eftir að hann tók við liðinu í september 2025.

„Strax þegar ég kom hingað áttaði ég mig á því hversu frábær hópur þetta er. Þegar ég horfi til baka sé ég hversu vel leikmennirnir náðu saman, bæði innan vallar og utan. Það er eitthvað sem við erum mjög ánægð með.“

Þrátt fyrir að tímabilinu hafi lokið án stærstu titlanna virðist því ríkja bjartsýni hjá Füchse Berlin, þar sem stjórnendur og þjálfarar líta á árangurinn sem mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top