Leikjaniðurröðun þýsku Bundesligunnar fyrir tímabilið 2026–27 hefur verið birt og ljóst er að stuðningsmenn fá strax stórleiki í fyrstu umferðunum. Tímabilið hefst 27. ágúst. Athygli vekur að þýsku meistararnir í SC Magdeburg hefja titilvörn sína á útivelli gegn VfL Gummersbach í 1. umferð deildarinnar. Þar mætir lið Guðjóns Vals Sigurðssonar ríkjandi meisturum í einum áhugaverðasta leik 1. umferðar. Leikurinn gæti jafnframt markað tímamót fyrir Garðar Inga Sindrason gæti þar leikið sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni. Garðar gengur í sumar til liðs við Gummersbach frá FH og gæti því fengið eldskírn gegn einu sterkasta liði Evrópu. Fleiri áhugaverðir leikir eru á dagskrá í fyrstu umferð. Silfurlið síðustu leiktíðar, Füchse Berlin, fær MT Melsungen í heimsókn, á meðan THW Kiel tekur á móti TBV Lemgo Lippe á heimavelli. Ef opnunarleikur Magdeburg telst krefjandi verður verkefnið ekki auðveldara í annarri umferð. Þá mætast nefnilega tvö efstu lið síðasta tímabils þegar Füchse Berlin og SC Magdeburg eigast við í Berlín. Füchse Berlin hafnaði í öðru sæti á síðustu leiktíð og mun án efa ætla sér að hefna fyrir að hafa misst meistaratitilinn til Magdeburg. Það má því segja að Magdeburg hefji tímabilið með tveimur afar erfiðum leikjum; fyrst gegn Gummersbach á útivelli og síðan gegn helstu keppinautum sínum um titilinn í Berlín aðeins nokkrum dögum síðar. Gummersbach fær síðan annað erfitt verkefni í 2. umferð þegar liðið sækir Rhein-Neckar Löwen heim. 1.umferð (27.-30.08.2026) Risaslagur strax í annarri umferð
THW Kiel - TBV Lemgo Lippe
SG Flensburg-Handewitt - ThSV Eisenach
Füchse Berlin - MT Melsungen TSV
Hannover-Burgdorf - Rhein-Neckar Löwen
Frisch Auf Göppingen - HC Erlangen
VfL Gummersbach - SC Magdeburg
TVB Stuttgart - Bergischer HC
HSG Wetzlar - Bietigheim
Balingen-Weilstetten - Handball Sport Verein Hamburg
2. umferð (02./03.09.2026)
SC Magdeburg - Füchse Berlin
MT Melsungen - Frisch Auf Göppingen
Rhein-Neckar Löwen - VfL Gummersbach
Handball Sport Verein Hamburg - TVB Stuttgart
HC Erlangen - TSV Hannover-Burgdorf
TBV Lemgo Lippe - HSG Wetzlar ThSV
Eisenach - HBW Balingen-Weilstetten
Bergischer HC - SG Flensburg-Handewitt
Bietigheim - THW Kiel

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.