Pólski landsliðsfyrirliðinn Arkadiusz Moryto hefur gengist undir aðgerð á vinstri öxl eftir að hafa glímt við þrálát meiðsli í rúm tvö ár. Moryto, sem leikur með pólska stórliðinu Industria Kielce varð fyrir meiðslunum í landsleik gegn Ungverjalandi árið 2023. Þá var ákveðið að meðhöndla meiðslin án skurðaðgerðar, en verkirnir hurfu aldrei að fullu og hafa fylgt honum síðan. Á þriðjudag í síðustu viku gekkst hægri hornamaðurinn hinsvegar loks undir aðgerð í Poznan og samkvæmt upplýsingum frá Kielce gekk aðgerðin samkvæmt áætlun. „Við fórum í segulómskoðun og síðan í viðtal hjá lækni sem staðfesti það sem við höfðum rætt um fyrir hálfu ári síðan. Þetta hefur fylgt mér í meira en tvö ár, þannig að ég var undir þetta búinn og finn meira að segja fyrir ákveðinni tilhlökkun,“ sagði Moryto samkvæmt Handball-World fyrir aðgerðina. Að sögn prófessors Przemyslaw Lubiatowski var um flókna axlaraðgerð að ræða. Meðal annars var gert við liðþófa í axlarliðnum og framkvæmd beinuppbygging til að styrkja öxlina. Nú tekur við endurhæfingin hjá Pólverjanum og er gert ráð fyrir að hann verði frá keppni í um sex mánuði. Moryto er einn af lykilmönnum bæði Industria Kielce og pólska landsliðsins og því mun fjarvera hans hafa talsverð áhrif á bæði félagslið hans og landsliðið á næstu mánuðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.