Þýska félagið THW Kiel hefur ákveðið að láta Filip Jicha af störfum sem þjálfara liðsins. Þar með lýkur 16 ára löngu sambandi Tékkans við félagið, fyrst sem leikmaður og síðar sem þjálfari. Félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni nú rétt í þessu en erlendir miðlar greindu frá því fyrr í morgun að þetta yrði niðurstaðan. Jicha kveður Kiel sem sigursælasti einstaklingur í sögu félagsins með alls 33 titla á ferlinum innan vallar sem utan. Sem þjálfari náði hann meðal annars þeim árangri að stýra liðinu til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2020. Ákvörðunin var tekin í kjölfar ítarlegrar greiningar á nýafstöðnu tímabili. Viktor Szilagyi, framkvæmdastjóri THW Kiel, sagði að félagið hefði komist að þeirri niðurstöðu að breytinga væri þörf. „Mitt hlutverk er að bregðast við þeim niðurstöðum sem liggja fyrir. Ég hefði helst viljað hefja enduruppbyggingu liðsins með Filip, en árangur liðsins og þróun þess sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði vegur of þungt,“ sagði Szilagyi. Hann lagði jafnframt áherslu á að Jicha bæri ekki einn ábyrgð á stöðu félagsins í dag. „Það væri rangt að gefa í skyn að Filip beri einn ábyrgð á þeim áskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir síðustu tvö ár. Eftir ítarlega yfirferð á tímabilinu teljum við hins vegar að tími sé kominn til breytinga í þessu starfi," sagði framkvæmdastjórinn. THW Kiel hefur ekki enn tilkynnt hver taki við þjálfarastarfinu. Szilagyi sagði að félagið myndi ekki tjá sig um þær vangaveltur sem þegar væru komnar af stað um mögulega arftaka. Borge Lund þjálfari norska félagsins Elverum og fyrrum leikmaður Kiel hefur verið orðaður sem arftaki Jicha. Jicha gekk til liðs við Kiel árið 2007 og lék með félaginu til ársins 2015. Á þeim tíma vann hann allt sem hægt var að vinna í félagsliðahandbolta, þar á meðal sjö þýska meistaratitla, fimm bikarmeistaratitla og tvo Evrópumeistaratitla. Árið 2010 var hann valinn besti handknattleiksmaður heims. Eftir að hafa lokið leikmannaferli sínum hjá FC Barcelona sneri hann aftur til Kiel árið 2018 sem aðstoðarþjálfari Alfreðs Gíslasonar. Sumarið 2019 tók hann við sem aðalþjálfari félagsins. Undir hans stjórn vann Kiel Meistaradeild Evrópu árið 2020, þýska meistaratitilinn árin 2020, 2021 og 2023, þýska bikarinn 2022 og 2025 auk fjögurra sigra í Ofurbikarnum. Jicha varð jafnframt fyrsti einstaklingurinn í sögu handboltans til að vinna Meistaradeild Evrópu bæði sem leikmaður og þjálfari með sama félagi.Einn sigursælasti handknattleiksmaður sinnar kynslóðar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.