Sænski handknattleiksmaðurinn Anton Månsson hefur lokið meðferð við eitilfrumukrabbameini og er nú laus við krabbamein. Frá þessu greindi sænska félagið Ystads IF. „Það eru til sigrar sem skipta meira máli en allt annað. Við erum ótrúlega glöð að geta greint frá því að Anton Månsson sé laus við krabbamein eftir meðferð sína,“ sagði meðal annars í tilkynningu félagsins. Månsson, sem er 36 ára gamall fyrrverandi sænskur landsliðsmaður, greindist með eitilfrumukrabbamein á síðasta ári. Hann hefur leikið með Ystads IF frá árinu 2021 og verið einn af lykilmönnum liðsins á þeim tíma. Månsson á að baki langan og farsælan atvinnumannaferil. Hann hefur meðal annars leikið með þýsku liðunum MT Melsungen, TBV Lemgo Lippe og GWD Minden auk svissneska stórliðsins Kadetten Schaffhausen. Þá mætti hann Val með Ystads IF í Evrópudeildinni fyrir þremur árum. Í tilkynningu félagsins var Månsson hrósað fyrir þann styrk og baráttuanda sem hann sýndi á meðan á veikindunum stóð. „Undanfarið hefur Anton sýnt hugrekki, styrk og baráttuvilja sem hefur veitt okkur öllum innblástur,“ sagði í tilkynningunni. Ystads IF sendi jafnframt Månsson og fjölskyldu hans hlýjar kveðjur og óskaði honum alls hins besta á komandi árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.