Bob Hanning hefur ákveðið hvenær hann hættir hjá Füchse Berlin
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Miklar breytingar eru fram undan hjá þýska stórliðinu Füchse Berlin en Bob Hanning, framkvæmdastjóri félagsins um árabil, hyggst láta af störfum árið 2028. Fyrrverandi leikmaður félagsins, Paul Drux, er sagður ætla að taka við stjórnartaumunum.

Frá þessu greinir handboltavefurinn Handball-World.

Bob Hanning hefur verið einn áhrifamesti maður þýska handboltans undanfarna tvo áratugi. Hann kom til Füchse Berlin árið 2005 þegar félagið lék í næstefstu deild Þýskalands og hefur síðan átt stóran þátt í uppbyggingu félagsins. Liðið hefur meðal annars komist í úrslit Meistaradeildarinnar tvö tímabil í röð en þurft að sætta sig við töp í bæði skiptin.

„Füchse Berlin er fjölskylda mín. Þetta er lífsverk mitt sem ég hef byggt upp og þróað ásamt fjölmörgu frábæru fólki,“ sagði Bob Hanning í heimildarmyndinni Das Meisterstück.

Hann segir mikilvægt að stíga til hliðar á réttum tíma og vill skilja við félagið þegar það stendur sem sterkast.

„Ég vil láta af störfum á rétta augnablikinu. Þegar við erum með besta liðið, reksturinn er traustur og skipulag félagsins til fyrirmyndar. Að geta sagt á slíkri stundu: „Nú sleppi ég takinu“, finnst mér rétt ákvörðun,“ segir Hanning.

Hann hefur jafnframt mikla trú á Paul Drux sem hefur verið orðaður við hlutverkið innan félagsins eftir að leikmannaferli hans lauk.

„Ég er sannfærður um að Paul Drux muni nálgast verkefnið á annan hátt en ég. Og það að gera hlutina öðruvísi getur vel þýtt að margt verði gert enn betur,“ segir Hanning.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top