Sænski þjálfarinn Staffan Olsson mun láta af störfum sem landsliðsþjálfari Hollands þegar núverandi samningur hans rennur út. Hollenska handknattleikssambandið (NHV) greindi frá ákvörðuninni fyrr í dag. Holland mistókst að vinna sér sæti á heimsmeistaramótinu í janúar eftir tap gegn Grikkjum í umspili um laust sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári.Samkvæmt tilkynningu sambandsins komust báðir aðilar að þeirri niðurstöðu að rétti tíminn væri kominn til að ljúka samstarfinu. „Við erum Staffan afar þakklát fyrir hollustu hans og framlag undanfarin ár. Með þekkingu sinni, reynslu og sýn hefur hann átt stóran þátt í þróun karlahandboltans í Hollandi,“ sagði Jaap Wals, framkvæmdastjóri NHV. Staffan Olsson tók við hollenska landsliðinu í september 2022. Sambandið telur að traustur grunnur hafi verið lagður á síðustu árum en nú sé rétti tíminn til að gera breytingar. Leitað verður að arftaka Olsson í samstarfi við Henk Groener, nýjan íþróttastjóra sambandsins, sem tekur formlega við starfi sínu 1. júlí. Nýr landsliðsþjálfari mun undirbúa liðið fyrir undankeppni Evrópumótsins 2028 sem hefst í nóvember. Svíinn sagðist sjálfur stoltur af þeim árangri sem náðist á meðan hann stýrði liðinu. „Við höfum unnið hörðum höndum með leikmönnum, þjálfurum og sambandinu að uppbyggingu liðsins og þróun hollensks karla handbolta. Ég er stoltur af því sem við höfum byggt upp og náð saman og lít til baka með mikilli ánægju og þakklæti,“ sagði Svíinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.