Í lok hvers tímabils velur Handball-Planet.com bestu félagaskiptin ársins. Listinn yfir bestu félagaskiptin fyrir tímabilið 2025/2026 má sjá hér að neðan en þar ber það helst að félagaskipti íslenska landsliðsmannsins, Hauk Þrastarsonar til Rhein Neckar Lowen teljast vera bestu félagaskipti síðasta sumars. Haukur Þrastarson gekk í raðir Rein Neckar Lowen frá rúmenska félaginu Dinamo Bucuresti en Haukur var stoðsendingahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar auk þess að vera markahæsti leikmaður Rhein Neckar Lowen á tímabilinu. Landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson er einnig á listanum en hann gekk í raðir SC Magdeburg frá MT Melsungen en hann lék stórt hlutverk í varnarleik Magdeburg sem urðu þýskir meistarar. Hér að neðan má sjá 15 bestu félagaskipti síðasta sumars að mati Handball Planet. 1. Haukur Thrastarson (Dinamo Bukarest – Rhein Neckar Lowen)
2. Oli Mittun (Savehof – GOG)
3. Kosuke Yasuhira (Kuwait Sports Club – HC Ohrid)
4. Diogo Oliveira (FC Porto – US Dunkerque)
5. Jaka Malus (RD Slovan – RK Vardar)
6. August Pedersen (SG Flensburg Handewitt – TSV Hannover Burgdorf)
7. Nicolaj Jorgensen (Sonderjyske – HSV Hamburg)
8. Ludovic Fabregas (Veszprem – FC Barcelona)
9. Aleks Vlah (Aalborg – Industria Kielce)
10. Felix Aellen (BSV Bern Muri – THsV Eisenach)
11. Kay Smits (Flensburg – VfL Gummersbach)
12. Matej Mandic (RK Zagreb – SC Magdeburg)
13. Elio Zammit (Pontault – Chambery)
14. Elvar Örn Jonsson (MT Melsungen – SC Magdeburg)
15. Milosz Walach (Kielce – RK Vardar)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.