Carlos Ortega, þjálfari Barcelona segir að félagið hefði helst viljað halda danska landsliðsmarkverðinum Emil Nielsen áfram en útilokar ekki að hann snúi aftur til félagsins síðar á ferlinum. Emil Nielsen yfirgefur Barcelona í sumar eftir fjögur ár hjá félaginu og gengur til liðs við Veszprém í Ungverjalandi. Í viðtali við Mundo Deportivo segir Ortega að Nielsen hafi verið lykilmaður í velgengni félagsins, sérstaklega í Meistaradeild Evrópu en liðið varð Evrópumeistari á dögunum eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleik. „Emil hefur verið lykilmaður í Meistaradeildinni, en hann er líka mannlegur og hefur átt sína slæmu leiki. Við hefðum öll viljað að hann yrði áfram hjá okkur,“ sagði Ortega. Spænski þjálfarinn sagðist jafnframt eiga erfitt með að skilja hvers vegna margir af bestu leikmönnum heims ákveði framtíð sína svo langt fram í tímann. „Ég skil ekki af hverju leikmenn eru svona fljótir að skrifa undir samninga tveimur árum áður en þeir taka gildi. Það getur margt breyst á þeim tíma. Það sem virðist svart í dag getur reynst hvítt síðar,“ sagði hann. Þrátt fyrir að Nielsen sé á förum segir Ortega að dyrnar að Barcelona verði ekki lokaðar fyrir danska markvörðinn. „Í íþróttum getur allt gerst. Við lokum engum dyrum, allra síst fyrir leikmann eins og hann. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Lífið tekur margar beygjur,“ sagði Ortega. Þrátt fyrir missinn hefur Barcelona þegar fundið eftirmann Nielsen í markinu, en Sergey Hernandez tekur við hlutverkinu og verður einn af tveimur markvörðum liðsins ásamt landsliðsmarkverðinum, Viktori Gísla Hallgrímssyni sem fær vonandi enn stærra hlutverk hjá liðinu á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.